Tölfræðieinkunn er komin í hús og ég stóðst, hef sjaldan verið jafn fegin
Þá er bara að bíða eftir niðurstöðum úr vinnulagi og skýringum á hegðun en þær koma nú varla fyrr en eftir áramót.
Fór á Próflokadjamm á Nasa í gær með Páli Óskari og VÁ hvað það var gaman!! Hann er náttúrulega bara bestur og ég dansaði og dansaði og dansaði. Skemmti mér alveg sjúklega vel og var ennþá í svo miklum ham þegar við komum heim að ég gat ekki sofnað fyrr en einhvern tímann eftir 8 í morgun
Fékk svo stæðsta pakka í geiminum frá pabba áðan, veit ekki hvort ég á eftir að halda það út að bíða eftir aðfangadagskvöldi til að opna hann
Vildi annars bara óska ykkur gleðilegra jól og þakka fyrir frábært ár
Jólakossar og knús frá mér
Update: Í dag: 121! Hvað er málið? Margir margir að skoða og bara ein dúlla búin að kommenta. Viljið þið hinar dúllurnar gjöra svo vel og kommenta líka